7.800kr.

LM 2008 á Hellu - Kynbótahross / Breeding horses / Zuchtpferde

Á diski með stóðhestum eru allir stóðhestar sýndir, 4 - 6 ferðir í dómi af hverjum, mest af þeim hæst dæmdu og ef hestur hækkaði einhverja gangtegund um 1 heilan í yfirlitssýningu er sú ferð sýnd ef til er, með nokkrum undantekningum þó. Tillit var t.d. tekið til þeirra sem keypt höfðu sérvinnslur af hrossum sínum og óskuðu eftir að ákveðnar ferðir yrðu sýndar. Lengd 118 mín.

Á diski með hryssum eru sýndar allar hryssur sem náðu sömu einkunn og þurfti til að komast inn á Landsmótið, alls 101 hryssa, 3 - 6 ferðir á hryssu. Sömu reglur um ferðir og hjá stóðhestum. Lengd alls 98 mínútur.

Efst á skjánum birtist nafn hests og endanleg röð á mótinu auk samanlögð einkunn fyrir sköpulag, hæfileika og aðaleinkunn. Einnig birtast einkunnir fyrir hæfileika; tölt, brokk, skeið, stökk, vilja og geð, fegurð í reið og fet. Þessar upplýsingar eru á skjánum á meðan hrossið er í mynd.