Um Eiðfaxa

Eiðfaxi ehf gefur út tímaritið Eiðfaxa, á íslandi og erlendis, fyrir unnendur íslenska hestsins. Einnig heldur Eiðfaxi ehf úti vefsvæðunum Eidfaxi.is og Eidfaxi.com.

Eiðfaxi hefur verið gefinn út samfellt frá árinu 1977 og vefsvæðinu hefur verið haldið úti frá árinu 1994.
Tímaritin eru 9 tölublöð á íslensku á ári, 6 tölublöð á þýsku, 6 tölublöð ensku og 6 tölublöð í skandinaviu innihalda greinar á sænsku, dönsku og norsku. Eitt stóðhestablað er gefið út á ári.

Blöðunum er ætlað að ná til allra sem unna íslenska hestinum. Í blöðunum eru greinar, viðtöl, fréttir, fróðleiksmolar og fallegar myndir. Þar er að finna fræðslu um reiðmennsku, ræktun, fóðrun, járningar, velferð og hvað eina sem varðar íslenska hestinn.

Eidfaxi.is vefurinn er uppplýsingagátt um íslenska hestinn, þar er öflug fréttarás sem hefur ávallt puttann á púlsinum. Smáauglýsingavefur, vefverslun, atburðadagatal hestamennskunnar, stóðhestavefur og ljósmyndavefur eru einnig hluti vefumhverfisins.

Blöðin á vefnum, öll útgáfa eiðfaxa frá upphafi aðgengileg á vefnum á rafrænu formi, þar geta áskrifendur skoðað öll blöð frá upphafi, leitað í þeim með aðstoð öflugrar leitarvélar.

Eiðfaxi ehf
Dugguvogi 10
104 Reykjavík
Sími: 588 2525
Fax: 588 2528

Ef þú vilt senda fréttir eða tilkynningar þá sendir þú Eiðfaxa línu á netfangið frettir@eidfaxi.is