view counter

Myndbandavefur Eiðfaxa

Kiljan frá Steinnesi í maí 2011

Kiljan frá Steinnesi var sýndur á Héraðssýningu að Sörlastöðum í maí 2011. Hlaut hann 8,66 í aðaleinkunn, 8,86 fyrir hæfileika og 8,35 fyrir sköpulag. Fékk hann einkunnina 9 fyrir bak og lend, hófa, tölt, brokk, skeið, vilja og geðslag og fegurð í reið.

Kiljan var sýndur til hæsta dóms sem 6 vetra stóðhestur hefur hlotið á Héraðssýningu í Víðidal í fyrra, þegar hann fékk 8,71 í aðaleinkunn þar af  8,96 fyrir hæfileika og 8,33 fyrir sköpulag.

Þrátt fyrir að hafa lækkað í einkunn síðan í fyrra stendur Kiljan efstur í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri sem komnir eru með landsmótslágmörk. Spennandi verður að fylgjast með Kiljan í yfirlitssýningu.

Kiljan er undan Kletti frá Hvammi og Kolfinnsdótturinni Kylju frá Steinnesi.

Dómurinn:

IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi
Örmerki: 968000001776303
Litur: 1521 Rauður/milli- stjörnótt glófext
Ræktandi: Magnús Jósefsson
Eigandi: Elías Árnason, Halldór Þorvaldsson, Ingolf Nordal
F.: IS1998187045 Klettur frá Hvammi
Ff.: IS1988165895 Gustur frá Hóli
Fm.: IS1983287105 Dóttla frá Hvammi
M.: IS1993256299 Kylja frá Steinnesi
Mf.: IS1981187020 Kolfinnur frá Kjarnholtum I
Mm.: IS1984256027 Hvönn frá Steinnesi
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning Sörlastöðum
Mál (cm): 141 - 133 - 137 - 62 - 141 - 37 - 45 - 43 - 6,5 - 30,0 - 18,5
Hófa mál: V.fr.: 8,9 - V.a.: 8,2
Sköpulag: 7,5 - 8,5 - 9,0 - 8,5 - 8,0 - 8,0 - 9,0 - 6,5 = 8,35
Hæfileikar: 9,0 - 9,0 - 9,0 - 8,5 - 9,0 - 9,0 - 7,5 = 8,86
Aðaleinkunn: 8,66      Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 8,0
Sýnandi: Þorvaldur Árni Þorvaldsson

Mót