Spónn.is

Fengur ehf. (spónn.is) var stofnað á árinu 2009 af Sigurði Halldórssyni. Fyrirtækið rekur meðal annars endurvinnslu sem sett var upp í framhaldi af tilraunum sem gerðar voru á árinu 2008 um nýtingu timburs sem fellur til hér á landi til framleiðslu á spón. Lögð er áhersla á að nota vistvæna orkugjafa til framleiðslunnar. Í dag framleiðir endurvinnslan spón fyrir íslenskan landbúnað. Áætlað er að framleiða um 3000 tonn á ári fyrir innlendan markað.

  • Sigursteinn Sumarliðason - liðsstjóri

    Sigursteinn stundar tamningu og þjálfun á Selfossi. Hann var kjörinn gæðingaknapi ársins 2010 og íþróttaknapi ársins 2011, varð heimsmeistari í gæðingaskeiði 2007. Landsmótssigurvegari og Íslandsmeistari í tölti 2011.

  • Ævar Örn Guðjónsson

    Ævar Örn er tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Hann rekur tamningastöð á félagssvæði Andvara. Á undanförnum árum hefur hann náð glæstum árangri á keppnisbrautinni sem og á kynbótabrautinni.

  • Elvar Þormarsson

    Elvar stundar tamningar og þjálfun á Hvolsvelli. Stundar hrossarækt ásamt fjölskyldu sinni á Strandarhjáleigu og hlutu þau titilinn ræktunarbú ársins 2009. Hann varð Íslandsmeistari í fjórgangi 2010 og hefur verið að gera góða hluti í keppni og sýningum á undanförnum árum.

  • Ólafur Ásgeirsson

    Ólafur hefur stundað tamningar og þjálfun að Vesturkoti, Skeiðum, um nokkurt skeið. Ólafur hefur staðið framarlega á keppnisbrautinni undanfarin ár og einnig verið að gera góða hluti í kynbótasýningum.