Fyrsta sameiginlega BS-gráðan hérlendis -

11 jún 2010 - 13:03

Á vef Háskólans á Hólum er greint frá brautskráningu fyrstu B.S. nemanna í hestafræðum: B.S. próf í hestafræðum er byggt á sameiginlegu námi Háskólans á Hólum og Landbúnaðarháskóla Íslands og voru 3 fyrstu nemendurnir útskrifaðir við hátíðlega athöfn í Reykholti þann 4.júní sl. en alls voru 20 nemendur á námsbrautinni í vetur.  Tvö fyrstu námsárin eru nemendurnir á Hvanneyri en eina sumarönn og þriðja námsárið á Hólum. Á Hvanneyri er m.a. boðið upp á almennari námskeið í raungreinum og búvísindum en á Hólum er boðið upp á sérhæfari námskeið í hestafræðum. Nemendur vinna síðan lokaverkefni.

Athygli vekur að þetta er í fyrsta skipti sem háskólar hérlendis brautskrá nemendur með sameiginlega B.S. prófgráðu tveggja skóla. Nú þegar þörf er á mun nánara samstarfi og samvinnu innan íslenska háskólasamfélagsins en áður verður að telja líklegt að þessi sameiginlega prófgráða tveggja skóla sé einungis sú fyrsta af mörgum. Má því segja að Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskólinn á Hólum ríði á vaðið með sameiginlega háskólagráðu í hestafræðum.

Á myndinn eru frá vinstri: Skúli Skúlason rektor Háskólans á Hólum, Emma Eyþórsdóttir brautarstjóri búvísinda og hestafræða við LbhÍ, Brynjar Skúlason, Sigríður Bjarnadóttir, Einar Reynisson, Víkingur Gunnarsson deildarstjóri hestafræðideildar Háskólans á Hólum og Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarháskóla Íslands.

 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.