Íþróttafólk Andvara 2009
Á aðalfundi Andvara sem fram fór þann 18.nóvember s.l. voru viðurkenningar veittar fyrir efnilegustu unglingana í félaginu. Að auki var val á Íþróttamanni Andvara kunngjört en fyrir valinu var hin síungi Erling Ó. Sigurðsson.
Efnilegust
Efnilegasta stúlkan í Andvara þetta árið var valin Guðlaug Jóna Matthíasdóttir og efnilegasti pilturinn er Arnar Lárusson. Þessir knapar hafa verið dugleg við útreiðar og tekið þátt í hinum ýmsu mótum, bæði hjá Andvara og á öðrum opnum mótum, með góðum árangri. Einnig hafa þau tekið þátt í félagsstörfum hjá hestamannafélaginu Andvara og aðstoðað við mót og aðra viðburði hjá félaginu.
Heiðursfélagi Andvara
Halldór Halldórsson var gerður að heiðursfélaga Andvara á fundinum. Halldór er fæddur í Reykjavík árið 1948 og hann kynntist hestum og reiðmennsku sem barn í sveit, en algengt var að börn voru send í sveit á uppvaxtarárum hans. Halldór ólst upp í Bústaðahverfinu í Reykjavík sem þá var jaðarhverfi borgarinnar og í kring um heimili hans voru bæði sveitabæjir, svína og hænsnabú og auðvitað hesthús. Halldór byggði sér sjálfur hesthús hér á Kjóavöllum árið 1984 og gekk það sama ár í Andvara. Halldór hefur verið ötull félagsmaður og ósérhlífinn og tekið að sér mörg verkefni fyrir Andvara, hann hefur átt sæti í stjórn félgsins sem gjaldkeri, mótanefnd, bygginganefnd félagsheimilisins, feðanefnd og reiðveganefnd. Á vegum Landssambands hestamannafélaga hefur Halldór verið í Landsmótsnefnd fyrir hönd Andvara árið 2000 þegar Landsmótið var haldið í Reykjavík og í varastjórn Lh. Árin 2002 – 2006 Þá hefur Halldór setið í samgöngunefnd Landssambands hestamannafélaga um árabil og formaður hennar frá árinu 2006.
Íþróttamaður Andvara
Erling Ó Sigurðsson, hinn gamalkunni knapi var kjörinn Íþróttamaður Andara. Erling hefur stundað hestamennslu frá blautu barnsbeini og stundað þjálfun hrossa, reiðkennslu og keppni á öllum tegundum hestamóta um æfina. Á árinu keppti Erling á fjölmörgum mótum og hlaut 1. sætið í 5 þeirra og setti tvö íslandsmet í skeiðgreinum þar sem rafrænn tímatökubúnaður var notaður.
Þá hlaut hann 2. sætið þrisvar sinnum 4 og 5 sætið einu sinni hvort, auk annara afreka. Erling var einvaldur og liðsstjóri Andvaraliðsins í bikarkeppni hestamannafélaganna á höfuðborgarsvæðinu á sl. ári, sem lið Andvara vann með glæsibrag.
Á myndunum er, auk verðlaunahafanna, Pétur Maack formaður félagsins. Myndirnar eru fengnar að láni á www.andvari.is.
Fréttir
-
11 feb 2012 - 20:30
-
11 feb 2012 - 15:55
-
11 feb 2012 - 14:35
-
11 feb 2012 - 13:40
-
11 feb 2012 - 13:31
-
11 feb 2012 - 10:38
-
10 feb 2012 - 17:07
-
10 feb 2012 - 16:31
-
10 feb 2012 - 11:44
-
10 feb 2012 - 11:13
-
10 feb 2012 - 11:07
-
10 feb 2012 - 00:16
-
9 feb 2012 - 22:56
-
9 feb 2012 - 21:34


Ummæli
Skrifa ný ummæli