Þórarinn Eymundsson og Kraftur frá Bringu á HM2007. Mynd: Eiðfaxi.

Þórarinn með kennslusýningu í Borgarnesi

10 nóv 2009 - 13:12

Miðvikudaginn 11. nóvember nk. mun Félag tamningamanna, í samvinnu við hestamannafélagið Skugga, standa fyrir kennslusýningu í reiðhöllinni í Borgarnesi kl. 20. Þórarinn Eymundsson, tamningameistari, mun sýna fjölbreytt vinnubrögð við þjálfun og tamningu, en hann er einn þekktasti knapi og reiðkennari landsins og margfaldur Íslands- og Heimsmeistari. Hann er ekki síst þekktur fyrir reiðmennsku sína á Krafti frá Bringu, en heimildarmynd um þá félaga var nýverið sýnd í kvikmyndahúsum hérlendis og hlaut mjög góða dóma.
Sýningin er öllum opin og er miðaverði stillt í hóf, aðeins kr. 1.500, en skuldlausir félagar í FT og Skugga fá miðann á 1.000 kr.
Kaffiveitingar á staðnum - allir velkomnir!
 
Félag tamningamanna

 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.