Myndin er frá ungfolasýningu í Söðulsholti.

Ungfolasýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands

8 mar 2010 - 08:08

Árleg Ungfolasýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður haldin í Ölfushöllinni laugardaginn 27.mars n.k. starfandi kynbótadómarar munu taka út folana bæði fyrir sköpulag og gangeiginleika.

Rétt til þátttöku hafa folar 2.vetra (fæddir 2008) og 3.vetra (fæddir 2007)

Sköpulag folana verður skoðað kl.15:00 að deginum en þeir verða reknir til í höllinni kl.20:00 þar sem að ganglag og hreyfieðli þeirra verður metið.

Áhorfendur velja svo hvaða foli er bestur en eigendur folanna fá skjal þar sem úttekt á folanum er sett fram á línulegum skalla.

Sú nýbreytni verður á þessari sýningu að hrossaræktendum verður boðið upp á mat á sköpulagi hryssna á aldrinum 2.vetra til 4.vetra (árgangur 2008, 2007 og 2006). Verða hryssurnar einungis metnar fyrir sköpulag og er þetta hugsað til þess að ræktendur geti fengið faglegt mat á mertryppum.

Skráning er hjá Óðni Erni í odinn@bssl.is

Jafnframt er rétt að minna á að árleg sýning samtakanna RÆKTUN 2010 fer fram á sama stað laugardaginn 17.apríl en þeir sem hafa áhuga á að koma fram með Ræktunarbú, afkvæmahóp og einstaka kynbótahross vinsamlega hafi samband í síma 866-1230 eða odinn@bssl.is
 

 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.