view counter

Tryggvi Björnsson og Bragi frá Kópavogi sigruðu B-flokkinn.

Ís-landsmót á Svínavatni - úrslit

Það var samhljóða ákvörðun mótsnefndar að halda Ís-Landsmótið á laugardaginn var, þrátt fyrir slæmt veður á mótsstað, og í raun um mest allt land.  Engu að síður voru margir keppendur mættir á svæðið, sumir um mjög langan veg, og það hefði  verið í fyllsta máta ósanngjarnt gagnvart þeim  að  fresta mótinu, eða fella það niður,  enda er það svo að aldrei yrði hægt að finna nýjan tíma sem hentaði öllum.

Mótið gekk vel að teknu tilliti til aðstæðna, og glæsitilþrif sáust hjá keppendum.  Undirbúningsnefnd mótsins þakkar keppendum kærlega fyrir komuna, og vonar að þeir hafi átt góða ferð heim.  Einnig þökkum við hinum fölmörgu styrktaraðilum fyrir stuðninginn,  og öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd mótsins á einn eða annan hátt.  Úrslit má finna á öðrum stað hér á síðunni,  en verðlaunaafhending fór fram í félagsheimilunu Dalsmynni í mótslok

Næsta Ís-Landsmót verður haldið á sama stað að ári, nánar tiltekið laugardaginn  5. mars 2011.

Úrslit:
B-flokkur
1. Tryggvi Björnsson og Bragi frá Kópavogi   8,53 / 8,73
2. Þorsteinn Björnsson og Ögri frá Hólum  8,51 / 8,44
3. Elvar Einarsson og Stimpill frá Vatni  8,44 / 8,46  Tryggvi knapi í forkeppni
4. Svavar Hreiðarsson og Johnny be good frá Hala  8,33 / 8,36
5. Jakob S. Sigurðsson og Glettingur frá St. Sandfelli 2   8,30 / 8,34
6. Ragnar Stefánsson og Lotning frá Þúfum  8,29 / 8,27
7. Ingólfur Pálmason og Dreyri frá Hjaltastöðum  8,27 / 8,50
8. Birna Tryggvadóttir og Elva frá Miklagarði    8,17 / 8,23
 

A-flokkur
1. Jakob Svavar Sigurðsson og Vörður frá Árbæ  8,44 / 8,53
2. Páll Bjarki Pálsson og Hreimur frá Flugumýri II  8,43 / 8,43
3. Elvar Einarsson og Kóngur frá Lækjamóti   8,36 / 8,37
4. Sigurður Pálsson og Glettingur frá Steinnesi  8,31/8,36 Páll knapi í forkeppni
5. Birna Tryggvadóttir og Röskur frá Lambanesi  8,30 / 8,37
6. Hlynur Guðmundsson og Draumur frá Ytri-Skógum  8,19 / 8,11
7. Ólafur Magnússon og Ódeseifur frá Möðrufelli  8,18  /  8,41
8. Tryggvi Björnsson og Dáðadrengur frá Köldukinn   8,06/8,06  Elvar knapi í forkeppni

Tölt
1. Jakob Svavar Sigurðsson og Árborg frá Miðey  7,50 / 6,83
2. Leó Geir Arnarsson og Krít frá Miðhjáleigu  7,17 / 7,33
3. Þorsteinn Björnsson og Ögri frá Hólum   7,00 / 6,67
4. Tryggvi Björnsson og Penni frá Glæsibæ  6,83 / 6,50
5. Camilla Petra Sigurðardóttir og Blær frá Kálfholti  6,67 / 6,17
6. Elvar Einarsson og Mön frá Lækjamóti  6,67  /  6,67
    Eftirtaldir luku ekki keppni
    Þorbjörn Hreinn Matthíasson og Úði frá Húsavík
    Ólafur Magnússon og Gáski frá Sveinsstöðum

Sjá fleiri myndir á www.is-landsmot.is

 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.
6 + 5 =
Vinsamlegast leggðu saman tölurnar og skrifaðu niðurstöðurnar. T.d. fyrir 1+3, skaltu skrifa 4.