view counter

Arnar Bjarki Sigurðarson á Spretti frá Akureyri. Mynd: Sissel Tveten.

Hestaíþróttamót í FSu

Hestaíþróttamót var haldið á Brávöllum miðvikudaginn 3.mars s.l. af nemendum Hestabrautar við FSu, Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Það voru aðallega nemendur hestabrautarinnar sem tóku þátt en mótið var opið öllum nemendum FSu.

Hestamannafélagið Sleipnir lánaði nemendum keppnisvöllinn og hljóðkerfið, Baldvin og Þorvaldur gáfu ábreiðu í verðlaun fyrir bestu reiðmennskuna og kom hún í hlut Brynhildar Sighvatsdóttur.

Arnar Bjarki Sigurðarson sigraði keppnina á Kraftssyninum Spretti frá Akureyri og hlaut farandbikar að launum og var það í annað sinn.

Dómarar voru þau Halldór Vilhjálmsson, íþróttadómari og hestamaður á Selfossi og Þórdís Erla Gunnarsdóttir íþróttadómari, tamningakona og reiðkennari á Grænhóli.


Úrslit

1. Arnar Bjarki Sigurðarson, Sprettur frá Akureyri,
2. Guðbjörn Tryggvason, Seifur frá Sýðra Velli.
3. Herdís Rútsdóttir, Embla frá Skiðbakka.
4. Ásta Alda Árnadóttir, Lúkas frá Stóru-heiði.
5. Brynhildur Sighvatsdóttir, Einar frá Hvammi.
6. Lydía Þorgeirsdóttir, Spá frá Álftarósi.
7. Elín Huld Kjartansdóttir, Heikir frá Ási.
8. Hrefna Rún Óðinsdóttir, Bylgja frá Króki
9. Kristín Hanna Bergsdóttir, Djarfur frá Hvammi.

  • Sigurvegararnir. Mynd: Sissel Tveten.
  • Arnar Bjarki Sigurðarson á Spretti frá Akureyri. Mynd: Sissel Tveten.
  • Ásta Alda Árnadóttir. Mynd: Sissel Tveten.
  • Brynhildur Sighvatsdóttir. Mynd: Sissel Tveten.
  • Herdís Rútsdóttir. Mynd: Sissel Tveten.
  • Guðbjörn Tryggvason. Mynd: Sissel Tveten.
 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.
18 + 2 =
Vinsamlegast leggðu saman tölurnar og skrifaðu niðurstöðurnar. T.d. fyrir 1+3, skaltu skrifa 4.