Hresst upp á minni Haraldar Þórarinssonar – opið bréf

9 mar 2010 - 12:57

Sæll Haraldur. Vegna svars þíns við fréttatilkynningu frá Geysi, Léttfeta, Sindra og Stíganda, sé ég mig knúna til þess að leiðrétta nokkrar staðreyndir.  Í fyrsta lagi þá tilkynnti ég starfsmanni L.H. að morgni 4. mars að erindið væri vegna Landsmóts 2012.  Hálfri klukkustund síðar hringir starfsmaðurinn, þá búinn að hafa samband við þig þar sem við (fulltrúar fjögurra hestamannafélaga af Suður- og Norðurlandi) höfðum fengið úthlutaðan fund kl: 15:30 föstudaginn 5. mars. 

Um kvöldið hafðir þú síðan samband, sagðist sjálfur vera upptekinn á morgun við önnur verk og enginn gæti mætt úr stjórninni nema kannski ein manneskja.  Þú tjáðir mér að þér þætti miður að geta ekki tekið sjálfur á móti okkur og vildir bjóða okkur í mat eftir helgi.  Ég gerði þér alveg ljóst að tilefnið hafi verið að afhenda ályktanirnar frá hestamannafélögunum. Aldrei minntist þú einu orði á það hver þessi  “önnur verk”  væru sem þú varst skyndilega upptekinn við, enda brá mér mikið þegar ég sá fréttir netmiðlanna daginn eftir um að þú hafir skrifað undir samning varðandi LM 2012 í Reykjavík. 

Þá finnst mér skrítið að enginn úr stjórninni hafi getað mætt kl: 15:30 þar sem ég hef fyrir satt að þú hafir fundað með þínum stjórnarmönnum kl: 16:00 þann sama dag.  Einkennilegt finnst mér að þú skulir ekki hafa beðið með stórar ákvarðanir varðandi LM 2012 þar sem þú vissir full vel að þú ættir von á afstöðu frá aðildarfélögum þeirra samtaka sem þú ert í forsvari fyrir.

Jónína Stefánsdóttir formaður Stíganda.

 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.