Framhaldsskólamótið í hestaíþróttum 27.mars
Framhaldskólamótið í hestaíþróttum verður haldið í Mosfellsbæ þann 27.mars næstkomandi. Síðustu ár hafa um 18 skólar tekið þátt. Í ár verður keppt í 4 greinum, Fjórgangi, fimmgangi, tölti og skeiði. Í skeiði er frjáls skráning og fer hún fram á mótsstað. Í hinum greinunum mega þrír keppendur keppa frá hverjum skóla. Skólar þurfa að skila inn skráningum fyrir 17.mars í
síðasta lagi.
Eftirtalin atriði þurfa að koma fram í skráningu:
• skóli
• nafn knapa
• nafn hests, aldur og litur
• keppnisgrein
• Uppá hvaða hönd er riðið.
Skráningargjaldið er 25.000 krónur á skóla (geta verið 9 keppendur), en ef keppendur eru aðeins 1-2 er gjaldið 12.500 kr. og er þá oft miðað við skóla útá landi þar sem aðeins kemur einn keppandi. Dagskrá mótsins verður birt á www.eidfaxi.is og www.hestafrettir.is ásamt ráslistum þegar styttast fer í mótið.
Gríðarlega stór knapagleði verður haldin um kvöldið, svo takið kvöldið frá. Mótið í ár verður rosalega flott og veglegt. Við hvetjum alla skóla til að taka þátt og halda úrtöku ef margir hafa áhuga á að keppa. Skráningu skal senda á aslasig@verslo.is fyrir 17.mars!
Hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest!
F.h Framhaldskólanefndarinnar í hestaíþróttum
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Gsm; 662 8276
aslasig@verslo.is
Fréttir
-
11 feb 2012 - 20:30
-
11 feb 2012 - 15:55
-
11 feb 2012 - 14:35
-
11 feb 2012 - 13:40
-
11 feb 2012 - 13:31
-
11 feb 2012 - 10:38
-
10 feb 2012 - 17:07
-
10 feb 2012 - 16:31
-
10 feb 2012 - 11:44
-
10 feb 2012 - 11:13
-
10 feb 2012 - 11:07
-
10 feb 2012 - 00:16
-
9 feb 2012 - 22:56
-
9 feb 2012 - 21:34




Ummæli
Skrifa ný ummæli