Svellkaldar á laugardaginn
Ístöltsmót kvenna, "Svellkaldar konur" fer fram í Skautahöllinni í Laugardal á laugardaginn kemur 13. mars og hefst mótið kl. 17. Alger sprengja varð í skráningu á mótið og stefnir í hörkukeppni í öllum flokkum. Sigurvegari opna flokksins í fyrra, Lena Zielinski mun freista þess að verja titil sinn, en fær án efa hörkukeppni því flestar bestu reiðkonur landsins eru skráðar til leiks. Skráning er annars góð í alla flokka, auk þess sem liðakeppni mun fara fram, en dregið verður í liðin af handahófi.
Glæsileg verðlaun eru í boði á mótinu, verðlaunagripir í A-úrslitum og verðlaunapeningar í B-úrslitum, auk fjölda flottra aukavinninga. Sigurvegarar í hverjum flokki fá einnig folatolla undir topphesta sem Hestvit, Þjóðólfshagi, Eysteinn Leifsson og Hrísdalur gefa og Lífland gefur öllum verðlaunahöfum í A-úrslitum burstasett. Sigurvegararnir í liðakeppninni munu fá sérstaka verðlaunapeninga fyrir þann þátt og rósir frá Gísla í Dalsgarði. Að venju verður glæsilegasta parið valið af dómurum og fær knapi þar gjafabréf frá Maríu Lovísu fatahönnuði.
Mótið hefst kl. 17 með forkeppni í flokknum "Minna vanar". Ráslistar og dagskrá verða birt í vikunni. Miðasala verður á staðnum og kostar aðeins kr. 1.000 inn. Allur ágóði af mótinu rennur svo til íslenska landsliðsins í hestaíþróttum að venju.
Stærstu styrktaraðilar mótsins í ár eru: LÍFLAND, HERTZ, VÍS, TOYOTA, ICELANDAIR, ICELANDAIR CARGO, ÍSPAN, BARKI, LOGOS, ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS, KVIKA, EUROPRIS, KÆNAN, KÖKUHORNIÐ og EIÐFAXI.
Fréttir
-
11 feb 2012 - 20:30
-
11 feb 2012 - 15:55
-
11 feb 2012 - 14:35
-
11 feb 2012 - 13:40
-
11 feb 2012 - 13:31
-
11 feb 2012 - 10:38
-
10 feb 2012 - 17:07
-
10 feb 2012 - 16:31
-
10 feb 2012 - 11:44
-
10 feb 2012 - 11:13
-
10 feb 2012 - 11:07
-
10 feb 2012 - 00:16
-
9 feb 2012 - 22:56
-
9 feb 2012 - 21:34




Ummæli
Skrifa ný ummæli