Áríðandi tilkynning til keppenda frá HÍDÍ
HÍDÍ hefur haldið tvö samræmingarnámskeið á undanförnum dögum. Ýmsar breytingar voru kynntar dómurum um áherslur í dómstörfum og túlkunaratriði á reglum sem notaðar hafa verið. Dómurum finnst áríðandi að þessar ábendingar skili sér til allra keppenda.
Hjálagt fylgja helstu breytingarnar – en keppendur eru hvattir til að prenta út Leiðarann af heimasíðu LH www.lhhestar.is undir keppnismál – íþróttadómarar og kynna sér hann.
- Í skeiði inná hringvelli er meiri munur í einkunn fyrir heilan sprett eða hálfan. Hámarkseinkunn 2.0 en var 3.5 fyrir hálfan sprett.
- Ný skemamynd um dómgæslu á skeiði á hringvelli. Þar er rækilega undirstrikað að ekki skal ríða hesti á skeiði gegnum beygju og ef það er gert er refsað. Sjá pdf skjal með þessari frétt.
- Ef hestinum er rennt í skeiðið eða hann er lagður fyrir framan miðju skammhliðar er dregið frá 2.0 af einkunn. Hestur á ekki að vera á skeiði fyrr en hann getur farið í beinni línu inn í langhliðina. Eins og allir vita getur það skapað hættu á meiðslum ef hesti er riðið á skeiði gegnum beygju.
- Sé gult spjald gefið vegna grófrar reiðmennsku skal einkunn fyrir það atriði ekki vera hærra en 3.5.
- Dómarar eru hvattir til að verðlauna prúðar og fagmannlegar sýningar.
- Gæðingaskeið: “HESTURINN SKAL VERA INNÍ TREKTINNI ÞEGAR HANN ER SETTUR Á STÖKK – HESTURINN SÉ EKKI SETTUR Á STÖKK FYRIR FRAMAN TREKTINA (UPPHAFSLÍNU) ÞÁ ER HÁMRKSEINKUNN 3.5”
Ef spurningar vakna er ykkur heimilt að senda fyrirspurnir á HÍDÍ á: pjetur@pon.is
Með bestu kveðjum,
Stjórn HÍDÍ.
| Viðhengi | Stærð |
|---|---|
| new_ICEE-19_2010.pdf | 97.07 KB |
Fréttir
-
1 ágú 2010 - 00:30
-
1 ágú 2010 - 00:20
-
31 júl 2010 - 23:58
-
31 júl 2010 - 19:00
-
31 júl 2010 - 15:51
-
31 júl 2010 - 15:31
-
31 júl 2010 - 11:11
-
31 júl 2010 - 11:03
-
31 júl 2010 - 00:51
-
30 júl 2010 - 21:18
-
30 júl 2010 - 21:06
-
30 júl 2010 - 20:47
-
30 júl 2010 - 20:34
-
30 júl 2010 - 15:34






Ummæli
Skrifa ný ummæli