Ísmót Suðurlands - úrslit
Stórskemmtilegu Ísmóti er lokið, en mótið var haldið í Gljánni í Þykkvabæ.
Þrátt fyrir tvísýnt veður um morguninn rættist vel úr deginum, veðrið var til friðs fyrir utan duglegan skammt af þrumum og eldingum.
Gríðarlega sterkir hestar mættu til leiks og var sannkallaður meistarabragur á keppendum og hestum.
Það má segja að hestakostur hefði verið enn mun meiri og betri ef keppendur Meistaradeildar voru ekki í startholum fyrir frestaða keppni sem var enn frestað.
Margir af keppendum á mótinu fóru snemma og tóku ekki þátt í A-flokk til að vera ekki á síðustu stundu.
Þrátt fyrir fáa hesta í A-flokki sem var lokagrein mótsins voru engir skódar þar á ferð eins og þulur komst svo vel að orði.
Ómur frá Kvistum og Kristjón Kristjónsson drógu sig reyndar úr keppni eftir að hafa verið efstir eftir forkeppni með 8,61 í einkunn.
Sigurvegarinn varð hinn lífsreyndi Albert Jónsson á ungri Aronsdóttir, Hyllingu frá Votmúla. Jón Bjarni Smárason kom fast á hæla hans á Smára frá Kollaleiru.
Í B-flokknum var hörð barátta milli Daníels Jónssonar og Dáta frá Hrappsstöðum sem voru efstir eftir forkeppni og Hjörvars Ágústssonar og Lilju frá Kirkjubæ sem stálu sigrinum í úrslitunum. Glæsileg hross bæði tvö ásamt öðrum úrslitahestum. Það þurfti að ná um 8,40 í B-flokknum til að komast í úrslit sem segir margt um gæði hrossanna.
Töltið var einnig frábært en öll hross í úrslitum náðu yfir 7 í meðaleinkunn í opna flokknum, en sú tala er óformleg þar sem einungis var keppt í hægu tölti og fegurðartölti en ekki hraðabreytingum.
Sigurvegari var Daníel Jónsson og stóðhesturinn Fontur frá Feti, en þeir sigruðu einnig vetrarmót Geysis fyrr í vetur og eru greinilega í fantaformi. Í öðru sæti var Viðar Ingólfsson á nýjum hesti, Spretti frá Akureyri sem kom einmitt fram á Sölusýningu í Ölfushöll í vetur.
Allir keppendur sem komust í úrslit fóru heim klyfjaðir af verðlaunum. Folatollar í efsta sætinu í öllum flokkum og önnur sæti fengu ýmis góðgæti eins og hrossabjúgur, kartöfluflögur, kartöflur, plokkfisk, hestanammi, fóðurbætir, hafra, reiðtygi, saltsteina og fleira.
En heildarúrslit voru eftirfarandi:
A-flokkur gæðinga
1
Hylling frá Votmúla
Albert Jónsson
8,61
2
Smári frá Kollaleiru
Jón Bjarni Smárason
8,60
3
Salný frá Hemlu
Vignir Siggeirsson
8,49
4
Dimmir frá Álfhólum
Sara Ástþórsdóttir
8,47
5
Barónessa frá Brekkum
Tómas Örn Snorrason
8,36
6
Hryðja frá Margrétarhofi
Birgitta Bjarnadóttir
8,19
7
Logi frá Keflavík
Arnar Bjarki Sigurðarson
7,56
8
Ómur frá Kvistum
Kristjón Kristjónsson
0,00
B-flokkur gæðinga
1
Lilja frá Kirkjubæ
Hjörvar Ágústsson
8,70
2
Dáti frá Hrappsstöðum
Daníel Jónsson
8,66
3
Röskur frá Sunnuhvoli
Arnar Bjarki Sigurðarson
8,56
4
Gjóska frá Álfhólum
Sara Ástþórsdóttir
8,50
5
Húni frá Reykjavík
Sigurður Óli Kristinsson
8,47
6
Þokkadís frá Akureyri
Kristjón Kristjónsson
8,39
7
Sleipnir frá Litlu-Tungu
Gústaf Ásgeir Hinriksson
8,31
8
Örvar frá Miðkoti
Ólafur Þórisson
8,20
Tölt 16 ára og yngri
1
Gústaf Ásgeir Hinriksson
Naskur frá Búlandi
2
Dagbjört Hrund
Ringó frá Kanastöðum
3
Róbert Bergmann
Brynja frá Bakkakoti
4
Birgitta Bjarnadóttir
Snót frá Prestsbakka
5
Sólrún Einarsdóttir
Salvar frá Hábæ
Tölt áhugamanna
1
Miriam Wenzel
Magna frá Dalsmynni
2
Hjörvar Ágústsson
Hrammur frá Kirkjubæ
3
Ida Grundberg
Gandálfur frá Garðsauka
4
Marita Borgen
Blængur frá Mosfellsbæ
5
Ragnheiður Ársælsdóttir
Logi frá Keflavík
Tölt opinn flokkur
1
Daníel Jónsson
Fontur frá Feti
2
Viðar Ingóflsson
Sprettur frá Akureyri
3
Sara Ástþórsdóttir
Gjóska frá Álfhólum
4
Vignir Siggeirsson
Heljar frá Hemlu 2
5
Katrín Sigurðardóttir
Heimir frá Holtsmúla
Fréttir
-
23 maí 2012 - 14:59
-
23 maí 2012 - 14:29
-
23 maí 2012 - 14:04
-
23 maí 2012 - 13:57
-
23 maí 2012 - 13:30
-
23 maí 2012 - 12:26
-
22 maí 2012 - 22:42
-
22 maí 2012 - 20:00
-
22 maí 2012 - 16:06
-
22 maí 2012 - 16:02
-
22 maí 2012 - 15:58
-
21 maí 2012 - 22:55
-
21 maí 2012 - 20:33
-
21 maí 2012 - 13:54






Ummæli
Skrifa ný ummæli