Opið töltmót í Reiðhöllinni Arnargerði
Opið töltmót hestamannafélagsins Neista á Blönduósi verður haldið í Reiðhöllinni Arnargerði föstudaginn 12. febrúar kl. 20.00. Keppt verður í 1. flokki, 2. flokki, unglingaflokki og barnaflokki. Tveir verða inná í einu og ekki snúið við.
Skráning er hjá Óla Magg á netfangið: sveinsstadir@simnet.is fyrir miðnætti þriðjudag 9. febrúar. Fram þarf að koma; knapi, hestur, litur og aldur og upp á hvora hönd er riðið.
Skráningargjald er 1.500 kr fyrir fullorðna en 500 fyrir börn og unglinga.
Skráningargjöld þarf að greiða áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 og senda kvittun á netfang Neista neisti.net@simnet.is
Aðgangseyrir er 1.000.- og frítt fyrir 12 ára og yngri.
Ath. að ef mikil þátttaka er þá gæti mótið byrjað fyrr, en það verður auglýst síðar .
Fréttir
-
11 mar 2010 - 13:42
-
11 mar 2010 - 11:38
-
11 mar 2010 - 10:49
-
11 mar 2010 - 09:42
-
11 mar 2010 - 08:59
-
11 mar 2010 - 08:57
-
11 mar 2010 - 08:53
-
10 mar 2010 - 16:07
-
10 mar 2010 - 13:15
-
10 mar 2010 - 12:48
-
10 mar 2010 - 12:19
-
10 mar 2010 - 10:14
-
10 mar 2010 - 09:57
-
9 mar 2010 - 12:57




Ummæli
Skrifa ný ummæli