Hvetur til aukinnar þátttöku í léttari grein í gæðingaskeiði
Hinrik Bragason og Trú frá Árbakka í gæðingaskeiði á HM2025. Ljósmynd: Henk & Patty
Jens Iversen fyrrum forseti FEIF sendi erindi til Eiðfaxa þar sem hann hvetur m.a. FEIF, mótshaldara og reiðkennara til þess að nýta regluverkið og efla keppni í gæðingaskeiðgrein sem heitir PP3 og var hugsuð sem undirbúningsgrein fyrir hið eiginlega gæðingaskeið PP1.
Rökstyður Jens það með tölfræðigreiningu frá Marko Mazeland á árangri á heimslistamótum árin 2017 til 2025. Þar kemur fram að árangur í gæðingaskeiði er verulega lakari, þegar horft er til einkunna, en í flestum öðrum greinum íþróttakeppninnar. Tölfræðin sýnir eftirfarandi stöðu:
- Meðaleinkunn í gæðingaskeiði á heimsvísu er einungis 4,10.
- Aðeins um 32% til 33% gefinna einkunna ná yfir 5,50.
- Árlega fá um 750 knapar einkunn undir 5,5 í greininni.
- Á sama tíma ná aðeins um 120 knapar árlega einkunn sem er yfir 5,5.
Vilja virkja „Easy Pace Test“ (PP3)
Til að stemma stigu við þessu ástandi leggur Jens til að aðildarlönd FEIF og mótshaldarar fari að bjóða markvisst upp á greinina PP3 samhliða öðrum léttari greinum á mótum og að greinin verði tekin inn á alþjóðlega stöðulista (World ranking list). Greinin er nú þegar til í reglum FEIF undir heitinu „Easy Pace Test“. Greinin er hönnuð þannig að hún er auðveld í framkvæmd fyrir mótshaldara og krefst einungis þriggja dómara. Henni er skipt upp í þrjá 50 metra kafla þar sem áherslan er á fallegar gangskiptingar inn og út úr skeiði. Það sem gerir greinina sérstaklega hentuga fyrir minna vana knapa er að ekki er gefin einkunn fyrir tíma í sprettinum, sem léttir verulega á verkefninu og pressunni.
Góð upplifun og aukin hestavelferð
Í ákallinu er bent á að fyrir meirihluta knapa sé betra að byrja í auðveldari grein og fá þar góða reynslu í stað þess að lenda í slæmri reynslu í erfiðri grein. Reiðkennarar geta notað PP3 sem frábæran ramma til að hvetja og kenna ungum eða óreyndum knöpum.
Þannig færist fókusinn að réttum undirbúningi og gangskiptingum. Að lokum fullyrðir Jens að með þessum hætti sé hægt að styðja markvisst við knapa og hestavelferð. Þetta myndi skapa góðan grundvöll fyrir fallegri sýningum í gæðingaskeiði í framtíðinni. Jens leggur til að þessi þróun yrði svo metin eftir þrjú ár til að sjá hvort ástæða sé til að breyta kröfum, eða grípa til annarra aðgerða til að bæta undirbúning fyrir gæðingaskeið alþjóðlega.
Tinni slær heimsmet