Eldsvoði í spónaverksmiðjunni í Hveragerði
mbl.is greinir frá: Betur fór en á horfðist þegar eldur kom upp í spónaframleiðslu í Hveragerði í nótt. En miklar reyk- og sótskemmdir urðu á þessu 1.000 fm iðnaðarhúsnæði sem var fullt af reyk er lögregla kom þar að.
Eldsins varð vart rétt fyrir klukkan eitt í nótt og var það starfsmaður Securitas, sem var á eftirlitsferð um aðrar byggingar, sem sá reyk koma frá húsinu. Hann hafði samband við´lögreglu sem kallaði til slökkvilið Hveragerðis er hún sá að húsið var fullt af reyk.
Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins í þessu 1.000 fm iðnaðarhúsnæði, sem hýsir spónaframleiðslu og var því nægur eldmatur í húsinu. Miklar reyk- og sótskemmdir urðu þó á byggingunni, auk þess sem kominn var talsverður hiti í veggi. Litlar skemmdir urðu hins vegar á vélabúnaði.
Upptök eldsins liggja ekki fyrir, en að sögn lögreglunnar á Selfossi, er ekki talið útilokað að kviknað hafi í út frá rafmagni.
Fréttir
-
31 júl 2010 - 23:58
-
31 júl 2010 - 19:00
-
31 júl 2010 - 15:51
-
31 júl 2010 - 15:31
-
31 júl 2010 - 11:11
-
31 júl 2010 - 11:03
-
31 júl 2010 - 00:51
-
30 júl 2010 - 21:18
-
30 júl 2010 - 21:06
-
30 júl 2010 - 20:47
-
30 júl 2010 - 20:34
-
30 júl 2010 - 15:34
-
30 júl 2010 - 13:18
-
30 júl 2010 - 10:11






Ummæli
Skrifa ný ummæli