Fréttir
Úrslit í tölti 2. flokki
Bryndís Snorradóttir á Hrafni frá Neðri Svertingsstöðum sigraði töltkeppnina í öðrum flokki með 6,22. Kristín María Jónsdóttir og Glanni frá Hvammi lentu í öðru sæti.
Arnar Bjarki suðurlandsmeistari í fimmgangi ungmenna
Arnar Bjarki Sigurðarson sigraði fimmgang ungmenna á Vonanda frá Bakkakoti með 6,48 en hann var í 5.-7. sæti eftir forkeppni, sannarlega fínn árangur það.
Gústaf varð Suðurlandsmeistari í fimmgangi unglinga
Úrslitum í fimmgangi unglinga var að ljúka og sigraði þau Gústaf Ásgeir Hinriksson á Fálka frá Tjarnarlandi með 6,21 í einkunn.
Forkeppni í T2 ungmennaflokki
Teitur Árnason og Öðlingur frá Langholti eru efstir eftir forkeppni í T2 ungmenna með 6,63 í öðru sæti er Erla Katrín Jónsdóttir á Dropa frá Selfossi með 6,23.
Forkeppni í T2 1.flokki
Eyjólfur Þorsteinsson og Ósk frá Þingnesi standa langefst eftir forkeppni í T2.
Forkeppni í tölti meistarafokks
það kom ekki á óvart að Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra Hofi skyldu verða efstir eftir forkeppni í meistaraflokki. Þeir hlutu í einkunn 8.13.
Forkeppni í tölti barna
Forkeppni í tölti barna var að ljúka og þar er efst Valdís Björk Guðmundsdóttir á Hrefnu frá Dallandi með 6,27.
Forkeppni í tölti unglinga
Gústaf Ásgeir Hinriksson og Skrekkur frá Hnjúkahlíð eru efstir eftir forkeppni í tölti unglinga með 6,63
Forkeppni í tölti ungmenna
Í ungmennaflokki er það Arnar Bjarki Sigurðarson og Kamban frá Húsavík sem er efstur með 7,07 í einkunn.
Forkeppni í tölti 2. flokki
Í öðrum flokki í töltinu er það Lisbeth. Sæmundsson sem er efst með Freyfaxa frá Holtsmúla með 6,33, í öðru sæti er Kjartan Guðbrandsson og Sýnir frá Efri Hömrum með 6,10
Forkeppni í tölti 1. flokki
Elías Þórhallsson og Svartnir frá Miðsitju leiða töltkeppni í fyrsta flokki eftir forkeppni með 6.70.
Fjórgangur Ungmenna
Forkeppni í fimmgangi unglinga
Forkeppni í fimmgangi unglinga var að ljúka. Það er Íslandsmeistarinn Gústaf Ágúst Hinriksson á Fálka frá Tjarnarlandi sem stendur efstur
Fréttir af Suðurlandsmóti
Um helgina verða birtar fréttir af Suðurlandsmótinu á Gaddstaðaflötum. Með því að velja ýta á borðann hér að ofan geta notendur nálgast fréttirnar.
Fokeppni í fimmgangi ungmenna
Það var Teitur Árnason og Gammur frá Skíðbakka 3 sem efstir stóðu í forkeppni í fimmgangi unglinga á Suðurlandsmótinu í kvöld.
Forkeppni í fimmgangi 1. flokki
Áfram heldur fimmgangurinn á Suðurlandsmóti. Helgi Leifur Sigmarsson á Trygg frá Bakkakoti er efstur í 1. Flokki með 6.60 og Eyjólfur Þorsteinsson á Róm frá Gíslholti annar með 6,40.

