Hross í hollri vist
Endurmenntun LbhÍ stendur fyrir námskeiði laugardaginn 13. mars um hesthúsbygginar - Hross í hollri vist! Hvetjum alla sem standa í slíku, nýbyggingum eða lagfæringum, að skrá sig sem fyrst. Einnig hvetjum við ykkur til að miðla upplýsngum um þetta námskeið til áhugasamra hestamanna ;-)
Námskeið LbhÍ: Hross í hollri vist - æskilegt að skrá sig fyrir 8. mars
Námskeiðið er í boði fyrir hestamannafélög, hestamenn og annað áhugafólk um hesthúsbyggingar.
Lýsing: Á námskeiðinu er farið yfir skynjun og atferli hrossa með sérstaka áherslu á það hvernig hross skynja umhverfið í hesthúsi. Fjallað um mikilvægi réttrar hönnunar loftræstingar og skoðuð nokkur dæmi. Þá verður farið yfir með hvaða hætti hanna á og ganga frá gólfum í hesthúsum og jafnframt rætt um kosti og galla mismunandi undirburðar. Þá verður drjúgum tíma varið til þess að ræða um aðbúnað hrossa og annarrar aðstöðu í hesthúsinu, sem og í útigerði. Að síðustu verður kynning á hönnun lausagönguhesthúsa.
Umsjón og kennsla: Sigtryggur Veigar Herbertsson og Snorri Sigurðsson, sérfræðingar hjá LbhÍ.
Stund og staður: lau. 13. mars kl 9:30-17:00 (9 kennslustundir) í Ásgarði á Hvanneyri.
Verð: 14.500 kr (kennsla, gögn og veitingar).
Skráningar hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000
(fram komi nafn, kennitala, heimili og sími).
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5000 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda kvittun með skýringu á endurmenntun@lbhi.is . Minnum á stéttarfélags- og starfsmenntasjóði.
Fréttir
-
31 júl 2010 - 23:58
-
31 júl 2010 - 19:00
-
31 júl 2010 - 15:51
-
31 júl 2010 - 15:31
-
31 júl 2010 - 11:11
-
31 júl 2010 - 11:03
-
31 júl 2010 - 00:51
-
30 júl 2010 - 21:18
-
30 júl 2010 - 21:06
-
30 júl 2010 - 20:47
-
30 júl 2010 - 20:34
-
30 júl 2010 - 15:34
-
30 júl 2010 - 13:18
-
30 júl 2010 - 10:11






Ummæli
Skrifa ný ummæli