Námskeið LbhÍ: Hross í hollri vist
Á döfinni er námskeið sem er í boði fyrir hestamannafélög, hestamenn og annað áhugafólk um hesthúsbyggingar.
Lýsing: Á námskeiðinu er farið yfir skynjun og atferli hrossa með sérstaka áherslu á það hvernig hross skynja umhverfið í hesthúsi. Fjallað um mikilvægi réttrar hönnunar loftræstingar og skoðuð nokkur dæmi. Þá verður farið yfir með hvaða hætti hanna á og ganga frá gólfum í hesthúsum og jafnframt rætt um kosti og galla mismunandi undirburðar. Þá verður drjúgum tíma varið til þess að ræða um aðbúnað hrossa og annarrar aðstöðu í hesthúsinu, sem og í útigerði. Að síðustu verður kynning á hönnun lausagönguhesthúsa.
Umsjón og kennsla: Sigtryggur Veigar Herbertsson og Snorri Sigurðsson, sérfræðingar hjá LbhÍ.
Stund og staður: lau. 13. mars kl 9:30-17:00 (9 kennslustundir) í Ásgarði á Hvanneyri.
Skráningar hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími). Skráningafrestur til 7. mars!
Nánar á www.lbhi.is/namskeid
Fréttir
-
23 maí 2012 - 14:59
-
23 maí 2012 - 14:29
-
23 maí 2012 - 14:04
-
23 maí 2012 - 13:57
-
23 maí 2012 - 13:30
-
23 maí 2012 - 12:26
-
22 maí 2012 - 22:42
-
22 maí 2012 - 20:00
-
22 maí 2012 - 16:06
-
22 maí 2012 - 16:02
-
22 maí 2012 - 15:58
-
21 maí 2012 - 22:55
-
21 maí 2012 - 20:33
-
21 maí 2012 - 13:54





Ummæli
Skrifa ný ummæli