Kennslumyndband um járningar og hófhirðu

8 des 2009 - 14:47

Útgáfufyrirtækið Ps hefur framleitt kennslumyndband um járningar og hófhirðu. Myndin er vel unnin og eru það þeir Erlendur Árnason járningamaður og Björgvin Þórisson dýralæknir sem sjá um kennsluþáttinn. Fylgst er með Erlendi er hann járnar og útskýrir bæði venjulegar járningar og járningar á plastbotna. Björgvin fer í gegnum uppbyggingu hófsins og það sem þarf að gæta að er hestar eru járnaðir.

Þessi diskur er kærkomin viðbót í kennsluefni um íslenska hestinn og ætti að auðvelda hinum almenna hestamanni að járna og eða meta járningar reiðhesta sinna. Diskurinn kemur út eftir helgina og verður seldur í vefverslun eiðfaxi.is og í hestavöruverslunum um land allt.

Verð disksins er kr. 4.900.-

 
view counter
view counter

Ummæli

Glæsilegur diskur hérna á ferðinni!
Mæli hiklaust með honum.
Þeir eru reyndar búnir að breyta coverinu á honum, og er það bara miklu flottara líka! Vel unnin og vel gerður diskur, tilvalinn fyrir alla hestaáhugamenn

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.