Hefur þú áhuga á unglingaskiptum?

1 feb 2010 - 11:52

Hefur þú áhuga á unglingaskiptum? Hefur þú/þið áhuga á að bjóða erlendum unglingum í heimsókn? Viltu fara til útlanda?
Æskulýðsnefnd Landssambands hestamanna í samvinnu við aðra æskulýðsfulltrúa innan FEIF, mun í sumar gefa íslenskum unglingum kost á að heimsækja önnur aðildarlönd FEIF.

Fyrirkomulagið verður þannig að unglingar á aldrinum 14 – 17 ára verða í 1 – 2 vikur hjá fjölskyldum sem eiga íslenska hesta og taka þátt í þeirra daglegu störfum.  Þetta er tækifæri fyrir áhugasama krakka að kynnast hestamennskunni á erlendri grund og mynda vinatengsl.

Einnig er fyrirhugað að bjóða erlendum unglingum til dvalar hér á landi á sömu forsendum.

Æskulýðsnefndin óskar eftir áhugasömum unglingum sem vilja fara og fjölskyldum sem mundu vilja bjóða heim erlendum unglingum.  Miðað verður við að þátttökugjald standi undir kostnaði.

Ef þið hafið áhuga vinsamlega hafið samband sem fyrst við æskulýðsnefnd LH. Tölvupóstföng og símanúmer eru á heimasíðu LH á www.lhhestar.is

Með kveðju,
Æskulýðsnefnd LH.
 

 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.