view counter

Hátíð frá Úlfsstöðum hlaut 10 fyrir tölt á LM2006. Kn. Erlingur Erlingsson.

Töltmyllur undan Hátíð-

24 nóv 2011 - 11:55

Hátíð frá Úlfsstöðum varð í fjórða sæti í flokki 5 vetra hryssa á Landsmótinu á Vindheimamelum árið 2006 með 8,38 í aðaleinkunn. Hátíð er ein af þeim ellefu hrossum sem hlotið hafa einkunnina 10,0 fyrir tölt. Hún hlaut 8,02 fyrir sköpulag og 8,62 fyrir kosti, þar af 9,5 fyrir fegurð í reið og 9 fyrir brokk, vilja og geðslag og hægt tölt. Hátíð var glæsileg klárhryssa þegar hún kom fram, gríðarlega skrefmikil og óvenju hágeng. Hún er nú stoðhryssa í ræktun hjá hrossaræktarbúinu Hamarsey og Ragnheiðarstaða, en eigendur þessara búa eiga hryssuna til helminga. Hátíð hefur eignast fimm afkvæmi sem virðist ætla að erfa bæði fas og hæfileika móður sinnar.

 
„Hátíð virðist erfa sterkt frá sér sína aðalkosti hvað varðar sköpulag; mikla fótahæð, fallegan háls og ekki síst liðleika og mýkt,“ segir Hannes Sigurjónsson á Hamarsey. „Fyrsta folald Hátíðar er Hákon, fæddur 2007 sem var frumtaminn í fyrra og stefnt er með á LM2012. Hrafnar er ári yngri en Hákon, á fjórða vetri núna, brúnstjörnóttur undan Orra frá Þúfu. Hann var frumtaminn núna í haust og lofar góðu, sýnir mikinn gang og er ljúfur og geðugur foli, háfættur og framfallegur.“ Auk Hákons og Hrafnars hefur Hátíð eignast þrjár hryssur, Hörku undan Gaumi frá Auðsholtshjáleigu, Hátign undan Kráki frá Blesastöðum og Heru undan Héðni frá Feti. Nú er Hátíð fylfull við Spuna frá Vesturkoti. 
 
Í 8. tbl. Eiðfaxa eru viðtöl við eigendur nokkurra verðlaunahryssa em vöktu verðskuldaða athygli þegar þær komu fram á kynbótasýningum. 
  • Hákon frá Ragnheiðarstöðum. F. Álfur frá Selfossi.
  • Hrafnar frá Ragnheiðarstöðum. F. Orri frá Þúfu.
  • Harka frá Hamarsey. F. Gaumur frá Auðsholtshjáleigu.
  • Hátign frá Ragnheiðarstöðum. F. Krákur frá Blesastöðum 1A
  • Hátíð og nýjasta afkvæmið, Hera frá Hamarsey. F. Héðinn frá Feti.
 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.