Fjölskylduferð Loga á Grænhól.

1 sep 2010 - 09:38

Farin var fjölskylduferð nú á dögunum á vegum æskulýðsstarfsins hjá hestamannafélaginu Loga.  Ferðin hófst á að heimsækja  Gunnar Arnarsson og Kristbjörgu Eyvindsdóttur á Grænhól. En þau hlutu landbúnaðarverðlaunin 2010 og hafa hlotið heiðursviðurkenninguna Hrossaræktarbú ársins alls fjórum sinnum. Við fengum góðar móttökur á Grænhól, þar sem húsakynni voru skoðuð, hestar sýndir og þau hjónin sögðu okkur frá starfinu. Við þökkum þeim kærlega fyrir okkur og  höfðum öll mikið gaman af að skoða þetta glæsilega bú. Ferðinni var síðan heitið í Selfossbíó og enduðum á Hróa Hetti. Frábær dagur. Framundan hjá æskulýðsstarfinu er svo reiðtygjaþrif og Álfareið í Reykholti. Minnum á heimasíðuna okkar http://logakrakkar.blogspot.com/  og http://hestamannafelagidlogi.bloggar.is/

 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.