Icelandic horse Hólar Uniwersity
Verðlaunahafar hrossaræktarbrautar ásamt Skúla Skúlasyni rektor og Víkingi Gunnarssyni.

Brautskráning Hólaskóla.

7 sep 2010 - 13:23

Föstudaginn 3. september, voru 65 nemendur brautskráðir frá Háskólanum á Hólum, við hátíðlega athöfn í Hóladómkirkju....

Rektor, Skúli Skúlason, ávarpaði nemendur, starfsmenn og aðra gesti, sem hann bauð að vanda velkomna heim í Hóla. Að ræðu rektors lokinni tóku deildarstjórarnir Kristina Tryselius, Bjarni Kristófer Kristjánsson og Víkingur Gunnarsson við, fluttu stuttar tölur og afhentu síðan prófskírteinin, hvert í sinni deild. Jón Þorsteinn Reynisson spilaði á harmoniku á milli atriða.
Alls útskrifuðust 27  sem hestafræðingar og leiðbeinendur. Anna-Lena Aldenhof hlaut viðurkenningar fyrir hæstu meðaleinkunn og fyrir hæstu einkunn í kennslufræði á leiðbeinendastigi. Auk þess hlaut hún Eiðfaxabikarinn. Sina Scholz fékk reiðmennskuverðlaun FT og Morgunblaðsskeifuna, sem er veitt fyrir besta samanlagðan árangur í reiðmennsku.

19 brautskráðust með diplómu í tamningum. Sylvíu Sigurbjörnsdóttur var veittur tamningabikar FT, fyrir hæstu meðaleinkunn.
Það voru sjö, sem útskrifuðust sem þjálfarar og reiðkennarar. Samkvæmt hefðinni færði formaður FT, Sigrún Ólafsdóttir, þá í einkennisjakka félagsins við útskriftarathöfnina, en því miður voru einungis tveir þeirra viðstaddir. Sigvaldi Lárus Guðmundsson hlaut bæði Morgunblaðshnakkinn, fyrir hæstu meðaleinkuun, og LH-styttuna, fyrir besta árangur í kennslufræði og reiðkennslu. Laura Benson vann til Ástundarhestsins, sem er veittur fyrir hæstu meðaleinkunn fyrir reiðmennsku.

Að lokum útskrifaðist einn nemi með BS-gráðu í hestafræðum, en sú braut er sameiginlegt verkefni Háskólans á Hólum og Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri.

Kaffisamsæti var í húsnæði skólans, að athöfn lokinni.

www.holar.is
 

 
view counter
view counter