Umsóknafrestur framlendur í Reiðmanninn á Akureyri og Iðavöllum á Héraði til 17. ágúst vegna óska heimamanna
Reiðmaðurinn er heiti á námskeiðsröð sem ætluð er fróðleiksfúsu hestafólki.
Námið er tilvalið fyrir þá sem vilja auka færni sína í reiðmennsku og þekkingu á hrossarækt og almennu hestahaldi.
>> Reiðmaðurinn er röð námskeiða sem kennd eru á tveimur árum og
hægt að taka samhliða vinnu eða námi.
>> Námið byggir á fjarnámi og verklegri kennslu eina helgi í mánuði yfir skólaárið.
>> Megináhersla er lögð á reiðmennsku. Einnig er fjallað um almenn atriði sem snúa
að hrossarækt og almennu hestahaldi, s.s. fóðrun, frjósemi og kynbætur.
>> Námið er metið til 33 ECVET-eininga á framhaldsskólastigi og lýkur námskeiðs-
röðinni með sérstakri viðurkenningu frá Landbúnaðarháskóla Íslands.
>> Umsækjendur þurfa að hafa náð 16 ára aldri.
>> Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands sér um framkvæmd námsins.
Auk LbhÍ koma Landssamband hestamannafélaga og Félag hrossabænda
að náminu.
>> Reiðkennarinn Erlingur Ingvarsson mun sjá um verklega kennslu á Akureyri!
>> Umsóknafrestur er framlengdur til 17. ágúst 2010
á Akureyri og Iðavöllum á Fljótsdalshéraði. Umsóknaeyðublöð þarf að prenta út og senda!
Nánari upplýsingar á endurmenntun@lbhi.is og á heimasíðunniwww.lbhi.is/namsk
Fréttir
-
12 feb 2012 - 14:07
-
12 feb 2012 - 12:58
-
11 feb 2012 - 20:30
-
11 feb 2012 - 15:55
-
11 feb 2012 - 14:35
-
11 feb 2012 - 13:40
-
11 feb 2012 - 13:31
-
11 feb 2012 - 10:38
-
10 feb 2012 - 17:07
-
10 feb 2012 - 16:31
-
10 feb 2012 - 11:44
-
10 feb 2012 - 11:13
-
10 feb 2012 - 11:07
-
10 feb 2012 - 00:16



Ummæli
Skrifa ný ummæli