Icelandic horse museum opens
Gamla hesthúsið hefur nú fengið nýtt og verðugt hlutverk.

Sögusetrið opnað í nýuppgerðu húsnæði-

15 ágú 2010 - 12:37

Gamla hesthúsið á Hólum í Hjaltadal stendur í hjarta Hólastaðar og hýsir nú starfsemi Söguseturs íslenska hestsins. Sögusetrið í hinu nýja húsnæði var opinberlega opnað gestum og starfsemi þess og húsnæðið blessað Laugardaginn 14 ágúst.

Töluverður fjöldi fólks var viðstaddur en það var ráðherra  mennta og menningarmála Katrín Jakobsdóttir sem opnaði safnið. Um leið var opnaður fyrsti áfangi af þremur í yfirlitssýningunni, „Íslenski hesturinn“ og vídeó-og ljósmyndasýningin, „Hesturinn í náttúru Íslands“.
Við þetta tækifæri færði Sigurður Sigmundsson safninu veglegar gjafir en hann hefur gefið Eiðfaxa og Sögusetri Íslenska hestsins allt ljósmyndasafn sitt, sem spannar áratugi og þúsundir mynda. Auk þess færði Sigurður Sögusetrinu að gjöf Eiðfaxa frá upphafi, allan innbundinn.

Ítarlegri umfjöllun um uppbyggingu Söguseturs Íslenska hestsins verður birt í tímaritinu Eiðfaxa í haust.

  • Töluverður fjöldi gesta var á Hólum.
  • Arna Björg Bjarnadóttir hefur stjórnað uppbyggingu Sðgusetursins.
  • Þórólfur Pétursson bóndi á Hjaltastöðum.
  • Sigurður Sigmundsson færði safninu veglega gjöf.
  • Veðrið lék við gesti og gestgjafa.
  • Fyrri alda tíðarandi sveif yfir Hólastað
  • Nokkrir gestanna.
  • Sveinn Guðmundsson á Sauðárkróki var meðal gesta.
  • Frá ljósmyndasýningunni.
  • Katrín ráðherra menningar og menntamála opnaði safnið.
  • Sigurður Sigmundsson og Arna Björg Bjarnadóttir fagna þessum tímamótum.
 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.