Meistaradeild UMFÍ
31 ágú 2010 - 15:45
Eins og menn rekur minni til, varð að fresta meistaradeild UMFÍ sem átti að ljúka í lok apríl. Þá hafði hestapestin tekið sér bólfestu á nokkrum stöðum hér Sunnanlands og ekki talið ráðlegt að boða til síðasta mótsins í mótaröðinni. Nú hefur hins vegar verið blásið til leiks og mun síðasta mótið verða haldið í Rangárhöllinni þriðjudaginn 31. ágúst og hefst kl. 18.00. Keppt verður í tölti T1 og skeiði. Vel hefur gengið að fá knapa meistaradeildarinnar í gírinn og væntum við þess að um geysiharða og skemmtilega keppni verði að ræða. Hvetjum alla til að mæta og sýna krökkunum að við höfum ekki minni áhuga á þeirra meistaradeild en meistaradeild fullorðinna.
Fréttir
-
11 feb 2012 - 15:55
-
11 feb 2012 - 14:35
-
11 feb 2012 - 13:40
-
11 feb 2012 - 13:31
-
11 feb 2012 - 10:38
-
10 feb 2012 - 17:07
-
10 feb 2012 - 16:31
-
10 feb 2012 - 11:44
-
10 feb 2012 - 11:13
-
10 feb 2012 - 11:07
-
10 feb 2012 - 00:16
-
9 feb 2012 - 22:56
-
9 feb 2012 - 21:34
-
9 feb 2012 - 14:58




Ummæli
Skrifa ný ummæli