Frumtamningarnámskeið
Hestamannafélagið Fákur og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið sem hefst í Reiðhöllinni í Víðidal 6. september nk.
Hver þátttakandi kemur með sitt trippi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s.:
- Atferli hestsins
- Leiðtogahlutverk
- Fortamning á trippi
- Undirbúningur fyrir frumtamningu
- Frumtamning
Bóklegir tímar: 2
Verklegir tímar: 12
Tímar: Mánudagskvöld, þriðjudagskvöld og fimmtudagskvöld í fjórar vikur.
Verð: 30.000.-
Fjórir verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 - 16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í Reiðhöllinni þar sem unnið verður með trippin (ca. 15 mín. á hvert trippi). Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.
Skráning á netfangið fakur@simnet.is - lokaskráningarfrestur er föstudagskvöldið. 3. sept. Fáksfélagar ganga fyrir en námskeiðið er öllum opið.
Fréttir
-
11 feb 2012 - 15:55
-
11 feb 2012 - 14:35
-
11 feb 2012 - 13:40
-
11 feb 2012 - 13:31
-
11 feb 2012 - 10:38
-
10 feb 2012 - 17:07
-
10 feb 2012 - 16:31
-
10 feb 2012 - 11:44
-
10 feb 2012 - 11:13
-
10 feb 2012 - 11:07
-
10 feb 2012 - 00:16
-
9 feb 2012 - 22:56
-
9 feb 2012 - 21:34
-
9 feb 2012 - 14:58




Ummæli
Skrifa ný ummæli