Atli Guðmundsson verður sýningarstjóri Stórsýningar FT

5 ágú 2010 - 14:02

Í tilefni af 40 ára afmæli Félags Tamningamanna verður haldin STÓRSÝNING í Reiðhöllinni í Víðidal laugardaginn 11.september.

Sýningin mun samanstanda af fróðleik og fjöri þar sem margir af fremstu knöpum landsins koma fram ásamt glæsilegum gæðingum. Síðar um kvöldið verður svo blásið til afmælisveislu Félags Tamningamanna.   Sýningarnefnd hefur tekið til starfa og er í traustum höndum þeirra Antons Páls Níelssonar, Þórarins Eymundssonar og Atla Guðmundssonar sem jafnframt er sýningarstjóri.  Sýningin verður öllum opin og eru hestaáhugamenn hvattir til þess að taka laugardaginn 11.september strax frá. Nánar auglýst síðar.
 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.