Fréttir

Viðar sigrar annað mótið í röð-

Þá er keppni lokið í Gæðingafimi í Meistaradeild VÍS. Það var hinn knái knapi Viðar Ingólfsson, Frumherja, á Tuma frá Stóra-Hofi sem sigraði með einkunnina 7,87.

Æskan & hesturinn í Kastljósinu í kvöld

Stórsýningin Æskan & hesturinn 2010 verður um helgina í Reiðhöllinni í Víðidal. Eins og venja er, verða tvær sýningar hvorn daginn, kl. 13 og kl. 16. Frítt er inn meðan húsrúm leyfir.

Gott mót í Skagfirsku mótaröðinni

Í gærkvöld fór fram tölt í skagfirsku mótaröðinni og var það gott og vel hepnað mót. Skráningar voru góðar og hart var barist í öllum flokkum.

Húnvetnska liðakeppnin - ráslistar

Hér koma ráslistar fyrir fimmgang og tölt unglinga í Húnvetnsku liðakeppninni, það verða tveir inn á í einu og er prógrammið, tölt, brokk, stökk, fet og skeið í fimmgangi (skeiðið eru tveir spretti

KB-Mótaröðin - Opið töltmót í Faxaborg

Minnum á að skráningarfrestur rennur út kl. 22 í kvöld, mótið hefst kl 12 laugardaginn 13 mars á barnaflokk, nánari dagskrá auglýst síðar.

Folaldasýning Sörla næstkomandi laugardag!

Minnum á hina árlega folaldasýning Sörla sem verður haldin í reiðhöllinni að Sörlastöðum í Hafnarfirði þann 13. mars næstkomandi.

Peningaverðlaun á opnu Barkamóti 2010

Peningaverðlaun á opnu Barkamóti 2010 - skráning á þriðjudag. Nú styttist í hið geysivinsæla Barkamót, sem haldið verður í Reiðhöllinni í Víðidal, laugardaginn 20. mars.

Ráslistar á Svellkaldar 2010

Nú hefur verið dregið um rásröð á Svellköldum 2010 og birtist hún hér að neðan. Dagskrá mótsins verður kynnt fyrir helgi, en mótið hefst kl.

Ís-landsmót á Svínavatni - úrslit

Það var samhljóða ákvörðun mótsnefndar að halda Ís-Landsmótið á laugardaginn var, þrátt fyrir slæmt veður á mótsstað, og í raun um mest allt land.  Engu að síður voru margir keppendur mættir á

Nýjar myndir í ljósmyndasafninu-

Nýtt safn mynda er nú komið inná ljósmyndasafn Eiðfaxa hér á vefnum. Það eru myndir frá keppni í slaktaumatölti í Meistaradeild VÍS um daginn.

Bikarkeppni hestamannafélaganna á höfuðborgarsvæðinu

Áfram heldur Bikarkeppni hestamannafélaganna, á föstudaginn verður hún haldin  í Mánahöllinni Keflavík klukkan 20:00.

Keppt verður í:

Hestaíþróttamót í FSu

Hestaíþróttamót var haldið á Brávöllum miðvikudaginn 3.mars s.l. af nemendum Hestabrautar við FSu, Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi.