Olil Amble þjálfar sænska landsliðið -
Svíar eru búnir að velja landsliðið sem keppir á Norðurlandamótinu í Finnlandi. Þjálfari sænska liðsins í ár er Olil Amble og má búast við að það verði í mörg horn að líta hjá henni að fínpússa liðið fyrir Norðurlandamót.
Aðspurð sagði Olil að starf landsliðsþjálfarans sé að aðstoða og hjálpa þeim sem þurfa á forsendum hvers og eins. Breiddin í svona liði er svo mikil allt frá því að vera unglingar að byrja sinn alþjóðlega keppnisferil uppí að vera heimsmeistarar. Sumir vilja mikla hjálp en aðrir litla, sumir eru með sína eigin þjálfara sem vinna þá með landsliðsþjálfaranum, bæði að undirbúningi og þegar á mótið er komið, þannig að starfið er margþætt.
Olil fer til Svíþjóðar næstu daga þar sem liðið hittist æfir í fjóra daga og svo fylgir hún þeim til Finnlands á mótið sjálft.
Þegar Olil er spurð hvort það sé ekki skrýtið að vera komin í „herbúðir andstæðinganna“ vill hún sem minnst gera úr því. „ ég lít ekki þannig á það þó auðvitað er einhver keppni milli landa, en aðalmarkmiðið með þessu er í raun það sama hjá öllum, það er að segja að auka veg íslenska hestsins“ segir Olil að lokum. -hg
Sænka liðið er skipað eftirtöldum knöpum:
Fullorðnir:
Anna Skúlason Flugar frá Holtsmúla
Anne Fornstedt Putti frá Tungu
Camilla Hed Thor från Järsta
Guðmundur Einarsson Sproti frá Sjávarborg
Hanna Eriksson Nökkvi frá Efri-Rauðalæk
Helen Gustafsson Borgfjörð vom Wiesengrund
Jacquelin Wahlström Hrekkur från Hålåsen
Jenny Göransson Snerrir frá Bæ
Johan Häggberg Sigurrós från Lilla Årnebo
Johanna Elgholm Oddur från Mörtö
Josefin Birkebro Kjarni vom Wallberg
Jökull Guðmundsson Feykir från Knutshyttan
Linnea Vas Kasper frá Tókastöðum
Nina Keskitalo Arður frá Lundum
Til vara: Linda Tommelstad Flotti frá Dadil
Ungmenni:
Albin af Klintberg Nitróglusserin från Hella
Evelina Berg Brink Segull frá Akrakoti
Felicia Lindblom Safir vom Lindenhof
Helena K Aðalsteinsdóttir Seth från Nöddegården
Julia Lindmark Svipur frá Mosfellsbæ
Linda Antonsson Ísak från Dirhuvud
Sandra Jónsson Ari från Stora Öllstorp
Lovisa Enblom Töfri från Bolandet
Til vara:
Ewelina Davidsson Svadilfari från Knutshyttan
Alexandra Alerius Þokki frá Enni
Fréttir
-
12 feb 2012 - 12:58
-
11 feb 2012 - 20:30
-
11 feb 2012 - 15:55
-
11 feb 2012 - 14:35
-
11 feb 2012 - 13:40
-
11 feb 2012 - 13:31
-
11 feb 2012 - 10:38
-
10 feb 2012 - 17:07
-
10 feb 2012 - 16:31
-
10 feb 2012 - 11:44
-
10 feb 2012 - 11:13
-
10 feb 2012 - 11:07
-
10 feb 2012 - 00:16
-
9 feb 2012 - 22:56



Ummæli
Skrifa ný ummæli